fbpx

Frontpage

Sannkölluð náttúruperla

„Sannkölluð náttúruperla“ er einkennandi fyrir Selá í Steingrímsfirði.
Selá er falleg fluguveiðiá, lygn, fjölbreytt, krefjandi, náttúrufegurðin og kyrrðin ósnortin.
Í Selárdal geta fluguveiðimenn notið veiðistundarinnar eins og hún gerist best.
Veiðifélag Selár í Steingrímsfirði var stofnað árið 1942.

Selá

Selá í Steingrímsfirði er dragá og er ein af vatnsmestu ám á Vestfjörðum og á upptök sín á Ófeigsfjarðarheiði í um 500m hæð yfir sjávarmáli.
Selá er í Strandasýslu á mörkum Kaldrananesshrepps og Strandabyggðar í 230km fjarlægð frá Reykjavík og 15km fjarlægð frá Hólmavík.
Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði og gengur fisk­ur um 20km upp ánna. Veiðist bæði bleikja og lax.
Meðal­veiði í Selá á Ströndum eru 200 bleikj­ur og 40 laxar en mest hafa komið um 100 laxar á land. Margir fallegir veiðistaðir eru í Selá og
eru í boði 1-4 flugustangir yfir veiðidaginn. Góð afþreying er stutt frá, veitingastaðir, sundlaugar og náttúrupottar. Fátt betra en að skella sér
í góða slökun eftir góðan dag í veiði. Ekkert veiðihús fylgir veiði og er fluguveiðimönnum bent á eftirfarandi gistingar og sundstaði.
Veiði fyrir Vestan er spennandi og krefjandi kostur, Selá í Steingrímsfirði er þar með talin og er tilvalinn veiðistaður fyrir fjölskylduna eða
unga sem aldna veiðimenn í fluguveiði. Hvernig hljómar fluguveiði í Selá á Ströndum? Selárdalur tekur vel á móti þér!

Er í Strandasýslu í 230km fjarlægð frá Reykjavík og 15km frá Hólmavík.

Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði og gengur fisk­ur um 20km upp ánna. Veiðist bæði bleikja og lax.

Hvernig hljómar fluguveiði í Selá á Ströndum? Selárdalur tekur vel á móti þér!

Myndir

Veiðireglur

Veiðistjórn Selár hefur ákveðið að gera tímabundið breytingar á veiðireglum fyrir veiðitímabilið. Stjórn vill fá betra jafnvægi í vatnakerfi árinnar. Á næstu árum er það ósk okkar að áin muni taka vel við þeim breytingum sem sem á henni verða. Það er okkar stefna að hlúa að náttúruperlunni okkar og vonum við að stangveiðimenn Selár taki vel í þessar breytingar sem skila sér vonandi í enn skemmtilegri og gjöfulli stangveiðiá í framtíðinni.
Veiðistjórn býður spennt eftir góðum árangri!

Fjöldi stanga: 4.
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði á flugustöng.
Kvóti: 2 bleikjur á stöng yfir daginn undir 40 cm. Öllum laxi sleppt(Hnúðlax drepinn).

Veiði er stranglega bönnuð Í Þjóðbrókargili og hliðarám Selár!
Veiði er leyfð ofan við efsta veiðistað nr. 19. Hvanneyrarfljóti og endar að Ófæru.

Hvar er Selá?

Selá er í Strandasýslu í 230km fjarlægð frá Reykjavík og 15km fjarlægð frá Hólmavík.

Gisting

Ekkert veiðihús er við Selá.

Malarhorn í Drangsnesi – https://malarhorn.is/

Hótel Laugarhóll í Bjarnarfirði 12km – laugarholl.is

Hólmavík í Steingrímsfirði 15km – booking.com

Sundstaðir

Bjarnarfjörður: laugarholl.is

Drangsnes: drangsnes.is / fjörupottarnir

Hólmavík: strandabyggd.is

Selá veiði

Vefsala Selár

4 stangir yfir daginn. Heill dagur eða hálfur dagur.
Veiðileyfi seld einnig í síma 8675111. Lesa skilmála

Veldu dag

Veiðistangir (veldu fjölda)

From: 8.000 kr.

Category: